Maður skaðbrennist af tjörueldi í Grindavík

Árið 1601 var bóndinn á Járngerðarstöðum í Grindavík,Jón Teitsson  að bræða skiptjöru á dögunum.Kynti hann eld undir tjörukeri.Svo slysalega tókst til,að eldurinn komst í tjöruna og læsti sig í föt bóndans, svo að hann logaði allur.Hlaut hann við þetta svo mikil brunasár,að hann lifði ekki nema tvær nætur.

Morð við kirkjugarðshliðið á Stað í Grindavík

Maður var veginn að Stað í Grindavík haustið 1587.Vegendur voru tveir,og hefur annar þerra,Björn Sturluson,smiður á Þórkötlustöðum,verið dæmdur útlægur,nema konungur geri þar miskunn á.Þetta gerðist með þeim hætti,að maður nokkur,Ingimundur Hákonarson,kom inn í kirkjuna,þar sem Helgi Úlfhéðinsson var einn með prestinum á Stað,og manaði hann að koma út.Þreif Ingimundur síðan korða sinn,er hann geymdi við […]

Sjóslys í Grindavík

Tuttugu og fimm menn af tveimur skipum drukknuðu við Þórkötlustaði í Grindavík árið 1583 .Þetta bar svo til ,að öðru skipinu hlekktist á,og ætluðu þá þeir ,er á hinu voru,að fara til hjálpar,en fórust einnig.

Víkingar frá Algeirsborg ræna fólki í Grindavík

Í Grindavík voru teknir tólf Íslendigar og þrír Danir. Herhlaupið í Grindavík 1627. Fyrsta víkingaskipið kom til Grindsavíkur 20.dag júnimánaðar og varpaði akkerum á grunninu úti fyrir höfninni. Var sendur frá því bátur, að dönsku kaupskipi, er þar lá, og létust víkingar vera hvalveiðimenn og báðust vista,en fengu ekki. Grindavíkurkaupmaðurinn, Láritz Bagge, mannaði þá bát og […]

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00