Kæru félagsmenn !
Í ljósi aðstæðna verður aðalfundur SVG haldinn á Stórhöfða 29 í húsi Fagfélaganna , þann 27 desember kl 18:00.
Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna .
Fyrir hönd stjórnar SVG , Einar H. Harðarsson.
SVG er með opna skrifstofu í húsi fagfélaganna , Stórhöfða 29 í Reykjavík.
Stefnt er að því að opna skrifstofu félagsins í Grindavík , fjótlega á nýju ári og verður það fyrst um sinn tvo daga í viku.
Sími félagsins 426-8400 er tengdur og netafangið svg@svg.is er virkt .
Félagsmenn SVG og velunnarar eru velkomnir að kíkja í kaffi og koma erindum á framfæri . Skrifstofan verður opin fyrst um sinn frá 09- 13.
Einar Hannes Harðarsson formaður , sími 777-6220
Kári Ölversson gjaldkeri 898-0327
Óskar Sævarsson starfsmaður , 662-7303.
Orlofsmál.
Húsafell er í söluferli , önnur hús félagsins eru á orlofsvefnum.
Félagið festi kaup nú nýverið á íbúð á Alicante / La Senia svæðið. Unnið er að því að standsetja og verður íbúðin leigð út til félagsmanna að því loknu.
Sjómenn.
Aðalfundur sjómanna -og vélstjórafélags Grindavíkur 2024,
Verður haldinn þann 27 desember kl. 18:00 að Stórhöfða 29 í húsi Fagfélaganna.
Kvöldverður og léttar veitingar verða í boði félagsins að fundi loknum.
Stjórnin býður gamla félagsmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá fundar :
- Fundur settur
- Kosning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar
- Stjórnakjör
- Lagabreytingar
- Önnur mál
.