Skilaboð til félagsmanna vegna smitvarna.

Um smitgát um borð í fiskiskipum og viðbrögð ef upp kemur grunur um smit um borð.

Einstaklingur sem kemur frá skilgreindu áhættusvæði er ekki heimilt að koma um borð. Einstaklingur sem sýnir flensueinkenni er ekki heimilt að koma um borð. Einstaklingi sem hefur umgengist einstaklinga sem eru með Covid-19 er ekki heimilt að koma um borð.

Áður en haldið er úr höfn skal skipstjóri/útgerð ræða við áhöfnina um hvers ber að gæta við að verjast smiti (handþvottur, notkun handspritts, aukin þrif og sótthreinsun snertifleta, matsveinn skammti á diska o.s.frv.) Áhöfnin skal við upphaf veiðiferðar upplýst um viðbragðsáætlun útgerðar ef smit kemur upp um borð. Fyrstu tvær vikur veiðiferðar skipta höfuðmáli.

Grunur um smit
Hafið strax samband við Stjórnstöð LHG/112 og Landlæknisembættið/1700. Látið útgerðarstjórn skipsins einnig vita strax. Skipstjóri skal setja viðkomandi strax í tímabundna einangrun. Ekki er heimilt að flytja hann á milli klefa, hann skal vera áfram í sínum klefa með aðgengi að snyrtingu og sturtu sem öðrum er ekki heimilt að nota á meðan. Skipstjóri ráðfærir sig við LHG/112 og Landlæknisembættið/1700 og útgerðarstjórn skipsins.

Skipstjóri ber ábyrgð á öllum aðgerðum og ákvarðanatökum
Skipstjóri skal tilgreina einn úr áhöfn sem hefur leyfi til að  umgangast þann sem er í sóttkví og færa honum mat og aðrar nauðsynjar.   Sami aðili skal sjá um hann allan tímann á meðan hann er í sóttkví. Sá aðili skal klæðast viðeigandi hlífðarbúnaði (einnota hanskar, grímur, plastsvuntur). Öðrum er óheimilt að umgangast hann. Allan búnað sem viðkomandi einstaklingur þarf á að halda í einangrun  skal ekki blanda saman við annan búnað áhafnar. Matarstell, búnaður og föt skulu þvegin sér og skal sá sem tekur við því klæðast  hlífðarbúnaði (einnota hönskum, grímu og plastsvuntu) og setja beint í þvott og  sótthreinsun.

Áður en komið er til hafnar
Undirbúið skipið og þann sem er í sóttkví áður en komið er til hafnar samkvæmt  ráðleggingum frá LHG/112 og Landlæknisembættinu. Mikilvægt er að aðrir úr áhöfn fari ekki frá borði.

Eftir að sjúklingur er farinn frá borði
Mikilvægt er að sótthreinsa svæði þar sem sá sem var í sóttkví hefur dvalið. Hafið samráð við Landlæknisembættið um hvernig staðið skal að því. Skip ætti að geta haldið aftur til veiða ef allir eru hraustir um borð. Slík ákvörðun skal tekin í samráði við Landlæknisembættið. Einstaklingur sem er í áhættuhópi t.d. með undirliggjandi sjúkdóm ætti að fara í land áður en skip fer aftur út.

EINUNGIS ER UM LEIÐBEININGAR AÐ RÆÐA OG ÞVÍ ER MIKILVÆGT FYRIR SKIPSTJÓRA OG ÚTGERÐ AÐ FYLGJA FYRIRMÆLUM LANDLÆKNISEMBÆTTIS OG LHG.

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00