Grindavík . 20.08.2019
Sjómanna og Vélstjórafélag Grindavíkur (S.V.G) lýsir yfir ánægju með að stjórn Gildis -lífeyrissjóðs hafi tekið ákvörðun um að selja skuli öll hlutabréf sjóðsins í H.B Granda nú Brim h/f.
Á sjóðsfélagafundi Gildis þann 24. Nóvemer 2018 lagði Einar H.Harðarsson formaður S.V.G , fram tillögu þess efnis , tillagan var ígrunduð á vantrausti á H.B Granda í ljósi viðskiptafléttu fyrirtækisins sem gæti skaðað m.a launarétt sjómanna .
Stjórn S.V.G vill koma á framfæri þakklæti til stjórnar Gildis fyrir hönd stærsta sjómannafélags landsins.