Einstaklingsstyrkir til starfsmenntunar:
- Félagsmaður, sem unnið hefur full starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu12 mánuðum skv. kjarasamningi SA/LÍÚ við SSÍ, hjá útgerðum innan LÍÚ, og greitt til aðildarfélags Sjómenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms.
- Við greiðslu náms/námskeiðs skal skila reikningi og viðurkenningu frá viðkomandi fræðslustofnun til skrifstofu viðkomandi stéttarfélags.
- Að fullnægðum ofangreindum skilyrðum kemur til greiðslu á styrk til viðkomandi.
- Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
- Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
- Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
- Sá sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum, heldur rétti sínum til styrks, enda hverfi starfsmaður aftur til sinna starfa. Þurfi félagsmaður að hverfa tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að greiða tryggingagjald af launum hans, heldur hann þeim rétti til starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum í allt að 24 mánuði. Að þeim tíma liðnum fellur réttur hans að fullu niður.
Upphæð styrks:
Greitt er að hámarki 75.000.- kr.í styrk á ári fyrir hvern félagsmann í almenna styrki, 100.000 krónur í meiraprófsstyrk.Hver einstaklingur getur einungis fengið slíkan styrk einu sinni. Ekki skiptir máli hvort allir fjórir þættir aukinna ökuréttinda séu teknir. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskeiðskostnaði.
Frístunda/tómstundanámskeið
Sjómennt veitir styrki fyrir tómstundastyrki að hámarki 20.000 kr.á ári, þó aldrei meira en 75 % af námskeiðsgjaldi.
Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar-og ritstuðning
Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 75.000.-.-
Áfrýjunarréttur
Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrk til starfsmenntunar, en er hafnað af viðkomandi stéttarfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til stjórnar Sjómenntar til afgreiðslu.