Heildarafli Sturlu var 105 tonn og verða 40 tonn seld á morgun. Uppistaðan í sölu dagsins var þorskur og ýsa en uppistaðan í sölu morgundagsins verður þorskur, langa og keila.
Eiríkur segir markaðinn á Humber-svæðinu hafa verið mikilvægan íslenskum útgerðum um áratugaskeið. „Við höfum ekki siglt með afla lengi en ástandið á mörkuðum er þannig að okkur ber hreinlega að nýta alla þá valkosti sem gefast í stöðunni. Þetta hefur verið einn okkar allra besti markaður og er það enn,“ segir Eiríkur.
Sturla GK 12 leggur af stað heimleiðis í kvöld. Annað skip Þorbjarnar hf., Ágúst GK 95, er á leið til Grimsby og mun selja þar nk. mánudag.