Viðmiðunarverð á karfa lækkar.
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið 7% lækkun á viðmiðunarverði á karfa í viðskiptum milli skyldra aðila. Verðlækkunin tekur gildi frá og með 1. nóvember 2010.
Viðmiðunarverð á karfa lækkar.
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið 7% lækkun á viðmiðunarverði á karfa í viðskiptum milli skyldra aðila. Verðlækkunin tekur gildi frá og með 1. nóvember 2010.
Viðmiðunarverð á þorski og ýsu lækkar.
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið að lækka viðmiðunarverð í viðskiptum milli skyldra aðila um 8% á slægðum og óslægðum þorski og um 10% á slægðri og óslægðri ýsu. Verðlækkun framangreindra tegunda tekur gildi frá og með 5. október 2010.
Viðmiðunarverð á ýsu lækkar.
Samkvæmt ákvörðun úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna lækkar viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu í viðskiptum milli skyldra aðila um 5% frá og með 1. september 2010
Viðmiðunarverð á þorski lækkar.
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið 5% lækkun á viðmiðunarverði á slægðum og óslægðum þorski í viðskiptum milli skyldra aðila. Verðlækkunin tekur gildi frá og með 1. júlí 2010.
SAMKOMULAG UM UFSA
Sjómannasamband Íslands (SSÍ), Farmanna- og fiskimannasamband Íslands (FFSÍ), VM – Félag vélstjóra- og málmtæknimanna (VM), annars vegar og Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) hins vegar gera, með vísan til 2. mgr. 1. greinar laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna og bókana um fiskverð í síðustu kjarasamningum SSÍ, FFSÍ, […]
Leiðrétting:
Sú meinlega villa slæddist inn í textann í nýjasta tölublaði Sjómannadagsblaðs Grindavíkur í greininni um róður með Jóhönnu Gísladóttur ÍS 7. Í upptalningunni á áhöfn skipsins í þessari veiðiferð, þar sem segir að Halldór Einarsson yfirstýrimaður sé að leysa af Þóri Sigfússon, átti að standa að Halldór leysi af skipstjórann, Þórð Pálmason, þegar hann fer […]
Hækkun fæðispeninga 1. júní 2010.
Fæðispeningar til sjómanna hækka um 7,2% frá og með 1. júní 2010
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2010 komið út
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2010 er komið út og hefur björgunarsveitarfólk frá Slysavarnadeildinni Þorbjörn boðið það til sölu líkt og undanfarin ár sem fjáröflun fyrir sitt starf. Blaðið er einnig í sölu á nokkrum útvöldum stöðum, verslunum, Sjómannastofunni Vör og Saltfisksetrinu fyrir þá sem að misst hafa af heimasölunni. Þá er blaðið í fyrsta skiptið í sölu […]
Fiskverð í beinum viðskiptum hækkar frá 1. apríl 2010.
Samkvæmt ákvörðun úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna hækkar viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski í viðskipum skyldra aðila um 7% frá og með 1. apríl 2010. Viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu í viðskiptum milli skyldra aðila hækkar um 10% frá sama tíma.
