I. Kafli.
Heiti félagsins og hlutverk
1. gr.
Félagið heitir Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur k.t.581078-0139. Skammstafað S.V.G
Félagssvæði þess er Grindavík. Félagið er aðili að Sjómannasambandi Íslands sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.
Heimili félagsins og varnarþing er Grindavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
a) Að sameina alla sjómenn og vélstjóra sem atvinnu stunda til sjós og lands.
b) Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna.
c) Að vinna að fræðslu- og menningarmálum.
3. gr.
Inngöngu í félagið geta þeir fengið sem:
a) Vinna, hafa unnið eða eru að hefja störf er 2. gr. a – liður greinir frá.
b) Eru fullra 16 ára að aldri.
c) Standa ekki í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan ASÍ, sem viðkomandi hafa verið í.
4. gr.
Sá sem óskar inngöngu í félagið skal senda skriflega inntökubeiðni til stjórnar félagsins eða þess sem hún vísar til. Inntökubeiðnin skal borin upp á fundi stjórnar og samþykki meirihluti mættra stjórnarmanna inntökubeiðnina er umsækjandi orðinn löglegur félagi. Felli stjórnarfundur inntökubeiðni skal félagsfundur úrskurða um inngöngubeiðni. Synji félagsfundur um inngöngu í félagið getur aðili skotið málinu til viðkomandi landssambands og miðstjórnar ASÍ en úrskurður félagsfundar gildir þar til landssamband eða miðstjórn ASÍ hafa úrskurðað annað.
5. gr.
Úrsögn skal vera skrifleg. Hún skal afhent formanni félagsins eða skrifstofu félagsins.
Félagsmenn halda félagsréttindum meðan þeir gegna trúnaðarstörfum í verkalýðs-hreyfingunni.
Enginn getur sagt sig úr félaginu eftir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hefur verið auglýst eða ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin af félaginu og þar til vinnustöðvuninni hefur verið formlega aflýst. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru félagi er lagt hafa niður vinnu vegna deilu.
II. Kafli.
Réttindi og skyldur félagsmanna, réttindamissir, brottrekstur
6. gr.
Réttindi félagsmanna eru eftirfarandi:
a) Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur á félagsfundum svo og kjörgengi. Atkvæðisréttur um kjarasamninga eftir nánari ákvörðun félagsfundar.
b) Réttur á styrkjum úr sjóðum félagsins, að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í reglugerðum sjóðanna.
c) Réttur til að vinna eftir þeim kjörum sem samningar félagsins ákveða hverju sinni.
d) Réttur til aðstoðar félagsins vegna vanefnda atvinnurekenda á samningum.
7. gr.
Skyldur félagsmanna eru:
a) Að hlíta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum í öllum greinum.
b) Að stuðla að því að ófélagsbundnir menn gangi í félagið og tilkynna til félagsins brot á lögum og samþykktum félagsins.
8. gr.
Félagsgjöld eru ákveðin aðalfundi og skulu innheimt sem ákveðið 1 % af launum en þó er heimilt að ákveða lágmarksgjald.
Félagsmaður sem skuldar lögboðin gjöld til félagsins fyrir 4 mánuði eða meira nýtur ekki fullra félagsréttinda, svo sem atkvæðisréttar, kjörgengis né styrkja úr sjóðum félagsins. Félagsréttindi öðlast hann ekki á ný fyrr en skuldin er að fullu greidd. Eins árs skuld varðar útstrikun af félagsskrá. Stjórn félagsins
getur veitt þeim sem sjúkir eru og fallið hafa af launaskrá eða stunda nám eftirgjöf á félagsgjaldi.
9. gr.
Ef félagsmaður er sakaður um brot á lögum félagsins skal málið tekið fyrir á stjórnarfundi sem ákveður með einföldum meirihluta atkvæða hvort veita skuli áminningu eða víkja félagsmanni úr félaginu. Skjóta má þeim úrskurði til félagsfundar.
Hver sá maður er rækur úr félaginu í lengri eða skemmri tíma sem að áliti félagsfundar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, bakað því tjón eða gert því eitthvað til vansa, svo og hver sem ekki hlýðir lögum þess eftir gefna áminningu í félaginu.
Úrskurði félagsfundar um áminningu eða brottvísun félagsmanns má vísa til viðkomandi landssambands og Alþýðusambandsins, en úrskurður félagsfundar gildir þar til sambandið ákveður annað.
Hafi félagsmanni verið vikið úr félaginu á hann ekki afturkvæmt í félagið nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á lögmætum félagsfundi.
III. Kafli.
Stjórn og trúnaðarráð
10. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn og 5 menn til vara: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, og 1 meðstjórnandi. Varastjórn skipa 5 menn. Kjörtímabil stjórnar er tvö ár. Stjórnarmenn sitji ekki í stjórn orlofssjóð eða styrktar og sjúkrasjóð.
11. gr.
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda. Stjórnin boðar til félagsfunda, sbr. 17. grein. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum félagsins. Skylt er stjórn félagsins að stuðla að því að allt er varðar sögu félagsins sé sem best varðveitt. Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum sem hann gegnir fyrir félagið er honum skylt að skila af sér öllum gögnum sem trúnaðarstarf hans varðar.
12. gr.
Formaður félagsins kveður til stjórnarfunda og stjórnar þeim. Formanni er skylt að halda stjórnarfund óski a.m.k. 2 stjórnarmenn eftir því. Formaður undirritar gerðarbækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldu sína. Hann hefur eftirlit með starfsemi félagsins og eftirlit með því að lögum þess og samþykktum sé fylgt í öllum greinum. Varastjórnarmenn taka
sæti í stjórn í forföllum aðalmanna. Varaformaður gegnir skyldum formanns í forföllum hans.
13. gr.
Ritari ber ábyrgð á því að gerðarbækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundargerðir og lagabreytingar.
Hann undirritar gerðarbækur félagsins ásamt formanni. Heimilt er að hljóðrita fundi félagsins.
14. gr.
Gjaldkeri hefur á hendi eftirlit með fjárreiðum félagsins og bókfærslu eftir nánari ákvörðun stjórnarinnar.
15. gr.
Trúnaðarráð skal vera starfandi í félaginu. Í ráðinu eiga sæti stjórn félagsins og varastjórn og 6 fullgildir félagsmenn sem kosnir eru í ráðið eftir sömu reglum og til sama tíma og stjórn. Þá skulu kosnir 6 varamenn í trúnaðarráðið um leið og aðalmenn eru kosnir. Formaður félagsins skal vera formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.
Formaður kveður trúnaðarráð til funda með þeim hætti er hann telur heppilegan. Skylt er formanni að boða trúnaðarráð til fundar ef þriðjungur þess óskar og tilgreinir fundarefni.Trúnaðarráðsfundur er löglegur ef meirihluti ráðsmanna mætir, eða alls 7 aðalmenn eða varamenn þeirra.
Formaður getur í nafni félagsstjórnar kallað saman trúnaðarráð stjórninni til aðstoðar þegar félagsleg vandamál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi, og ræður einfaldur meirihluti úrslitum í slíkum málum.
Hlutverk trúnaðarráðs er m.a. auk ofanritaðs:
• Að gera tillögu um atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun.
• Að leggja mat á samninga áður en þeir eru bornir undir atkvæði
16. gr.
Samninganefnd skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um kjarasamningsgerð fyrir hönd félagsins. Nefndin skal kjörin af trúnaðarráði og í henni skulu eiga sæti 9 menn. Formaður félagsins skal vera formaður samninganefndar nema annað sé ákveðið í lögum félagsins. Samninganefnd er heimilt að skipta með sér verkum eftir samningssviðum.
17. gr.
Kjörstjórn skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um stjórn atkvæðagreiðslna um kjarasamninga, verkföll og allsherjaratkvæðagreiðslur skv.lögum félagsins.Kjörstjórnin skal kjörin af aðalfundi og í henni skulu eiga sæti tveir menn og tveir til vara. Við stjórnun atkvæðagreiðslna um kjarasamninga og verkföll skipar trúnaðarráð þriðja stjórnarmanninn og skal
hann vera formaður kjörstjórnar. Við stjórnun allsherjaratkvæðagreiðslna um önnur atriði skv. lögum félagsins og/eða lögum ASÍ skipar miðstjórn ASÍ þriðja kjörstjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.
IV. Kafli
Fundir og stjórnarkjör
18. gr.
Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn álítur þess þörf eða minnst 1/10 fullgildir félagsmenn óska þess við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Fundir skulu boðaðir með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara með Aðferð við boðun verður að vera þannig að félagsmenn hafi sem jafnasta möguleika á að vita af fundi en fer að öðru leyti eftir aðstæðum hvers félags. Dæmi um slíka boðun er auglýsing í útvarpi og dagblaði eða héraðsfréttablaði eða bréfleg tilkynning til allra félagsmanna. Þó má í sambandi við vinnudeilur boða fund með skemmri fyrirvara. Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Fundum félagsins skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Komi upp ágreiningsatriði um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði. Óski einstakur félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk.
19. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok desember ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá með 3 sólarhringa fyrirvara og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Um boðun aðalfundar fer að öðru leyti með sama hætti og boðun félagsfundar.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
3. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs,til 2 ára
4. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara.
5. Kosning til annarra stjórna og ráða sem lög og reglugerðir félagsins gera ráð fyrir.
6. Lagabreytingar, ef fyrir liggja.
7. Önnur mál.
V. Kafli
Fjármál
20. gr.
Af tekjum félags skal greiða öll útgjöld þess, skatt til viðkomandi landssambands og ASÍ og annan kostnað, er stafar af samþykktum félagsfunda eða stjórnar. Við meiri háttar ráðstafanir á eigum félagsins þarf samþykki félagsfundar.
21. gr.
Tveir félagslegir skoðunarmenn skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir sínar við þá. Skoðunarmenn eru kosnir á aðalfundi. Hlutverk þeirra er m.a. að hafa eftirlit með því að fjármunum félagsins sé varið til þeirra verkefna sem félagsfundur og/eða stjórn hafa ákveðið. Auk athugunar hinna félagskjörnu skoðunarmanna er stjórn félagsins skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikningsárs.
22. gr.
Sjóðir í eigu eða vörslu félagsins skulu vera:
Félagssjóður, sjúkrasjóður, vinnudeilusjóður, orlofsheimilasjóður, svo og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna að vera. Allir sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð sem samþykkja þarf á aðalfundi. Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. Reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans skuli vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað.
Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum, í ríkistryggðum skuldabréfum í bönkum eða í sparisjóðum, í skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign eða á annan hátt er stjórn félagsins og metur tryggan.
Tekjur félagsins skiptast milli sjóðanna samkvæmt ákvæðum í reglugerðum þeirra.
VI. Kafli.
Lagabreytingar
23. gr
Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði. Einnig er heimilt að breyta lögum á félagsfundi, hafi lagabreytingarnar áður verið ræddar á félagsfundi og breytinganna getið í fundarboði.
Til þess að breytingin nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 hlutum greiddra atkvæða fullgildra félagsmanna.
Breytingar á lögunum koma fyrst til framkvæmda er stjórn hlutaðeigandi landssambands og miðstjórn ASÍ hefur staðfest þær.
VII. Kafli
Félagsslit o.fl.
24. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 allra félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Verði samþykkt að leggja félagið niður skal Alþýðusamband Íslands varðveita eignir þess þar til annað verkalýðsfélag er stofnað með sama tilgangi á félagssvæðinu. Fær það félag þá umráð eignanna að áskildu samþykki miðstjórnar Alþýðusambandsins.
Um sameiningu félaga skal fjallað á sama hátt og lagabreytingar.
Um úrsögn úr ASÍ og landssamböndum fer skv. lögum ASÍ.
Lög félagsins þannig samþykkt á aðalfundi félagsins þann 27/12/ 2007