Ítrekun frá stjórn Sjómanna og Vélstjórafélags Grindavíkur.
Félagsmenn eru hvattir til þess að fara yfir launaseðla sína og óska eftir upplýsingum um aflauppgjör skv kjarasamningi sjómanna.
Stjórn S.V.G. ítrekar við félagsmenn að skrifa ekki undir ráðningarsamninga nema með fyrirvara um að þeir standist gildandi kjarasamninga .
Félagsmenn eru áminntir um að tikynna slys og önnur óhöpp til skipstjóra og sjá til þess að atvik verði færð í skipsdagbók. Það er á ábyrgð skipstjóra og útgerðar að tilkynna atvik til Tryggingastofnunar ríkisins.
Stjórn SVG