Henda sjö milljarða króna aflaverðmæti vegna ESB reglna

Skoskir sjómenn neyðast til þess að að henda árlega fiski fyrir allt að 7 milljarða króna (40 milljónir punda). Þetta kom fram á ráðstefnu sem skosk stjórnvöld héldu í Edinborg 25/09/2008.  Allt að einni milljón tonna af fiski er hent í Norðursjónum árlega vegna ESB reglna. Þetta þýðir með öðrum orðum að fyrir hvern þorsk sem landað er af skoskum sjómönnum er öðrum hent í hafið.  Þessi hrikalega lýsing kom fram í máli Richard Lochhead sjávarútvegsráðherra Skotlands.  Tilefni ráðstefnunnar er að hefja baráttu fyrir því að breyta þessum reglum, sem neyða sjómenn til þess að henda fiski í stað þess að landa aflanum og selja hann.  Á þessari ráðstefnu eru einnig norskir ráðamenn sem munu taka þetta upp í væntanlegum viðræðum við Evrópusambandið. Frekari upplýsingar um þetta mál má nálgast á heimasíðu  The Scottish Government hér.

Heimild Líú

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00