Spurt og svarað
Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?
Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum stéttarfélaganna, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.
Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?
Á vefnum orlof.is geturðu skráð þig inn, eins og
þegar þú sækir um orlofshús, og valið „Ferðaávísun“. Þá koma valmöguleikarnir
upp. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð
herbergis eða innifalinni þjónustu.
Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?
Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. Með þessu verður fylgst náið.
Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég
hana?
Þú ferð inn á orlofsvef þíns stéttarfélags og
smellir á „Ferðaávísun“. Þegar þú hefur valið þér vöru og greitt fyrir með
greiðslukorti, færðu kvittun í tölvupósti. Ávísunin þín verður á þínu svæði á
orlofsvefnum og gististaðir geta flett kennitölunni upp, þegar þú mætir á
staðinn.
Hvernig nota ég ferðaávísunina?
Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu
þína, sem er þá skráð í bókunarkerfi gististaðarins. Þú þarft engu að framvísa
öðru en persónuskilríkjum.
Get ég fengið ávísunina endurgreidda?
Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú
færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út, sé hún ónýtt. Hafi punktar verið
teknir af félagsmanni við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.
Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið
restina til baka?
Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan
sem ekki hefur verið nýttur. Ef ávísunin hefur verið niðurgreidd að hluta
verður endurgreiðslan í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.
Rennur ávísunin út?
Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um
endurgreiðslu hvenær sem er.
Ég hef ekki aðgang að tölvu eða snjallsíma eða er ekki
með rafræn skilríki. Hvernig get ég keypt ferðaávísun?
Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu
félagsins ef þig vantar aðstoð. Við hjálpum þér með ánægju og reynum að leysa
málin.