Í gær náðist samkomulag milli deiluaðila um verðmyndun á fiski , fundur verður hjá ríkissáttasemjara fyrir hádegi og strax eftir hádegi mun samninganefnd sjómannasambandsins hittast og fara yfir þær tillögur sem á borðinu liggur, um framhaldið er ómögulegt að spá , við birtum fréttir á síðunni um leið og þær berast. Stjórnin
Archive | Fréttir
Fréttir /Fréttaleysi af samningaviðræðum í kjaradeilu Sjómanna
Látlausar hringingar okkar félagsmanna á skrifstofu félagsins að leita frétta af kjaradeilunni eru vel skiljanlegar , fyrir það fyrsta erum við ekki í þeirri stöðu að geta sett á okkar síðu nýjustu fréttir af samningaborðinu og hitt er það að upplýsingar eru af skornum skammti. Samfélagsumræðan er ekki með okkur , og áhugaleysi fjölmiðla er […]
12. metrar og 15. brúttótonn
Af gefnu tilefni vill stjórn SVG ítreka og benda á að allir sjómenn á bátum skráðum 12 metrar og stærri / 15 brúttótonn og stærri eru að fara í vinnustöðvun kl 23:00 að kvöldi fimmtudagsins 10. nóvember. á félagssvæði SVG verður fylgst með verkfalsbrotum , hart verður tekið á brotum ef til þess kemur. […]
Framboðsfrestur til stjórnar SVG
Framboðsfrestur til stjórnar félagsins, aðal og varastjórnar rennur út 4.vikum fyrir aðalfund og skal stjórn félagsins auglýsa hann sérstaklega. Framboðum skal skila skriflega á skrifstofu félagsins fyrir lok framboðsfrests. Frambjóðendur skulu tilgreina í framboði sínu til hvaða embættis þeir bjóða sig fram. Berist ekki framboð til allra aðal- og varastjórnarsæta, skal stjórn félagsins stilla upp […]
Músagangur og skítug Grill
Af gefnu tilefni biður orlofsnefnd félagsmenn um að gæta að því að loka dyrum og gluggum vegna músagangs og hafa ekki opið meira en nauðsynlegt er. Einnig hefur borið á því að úti-Grillin eru skítug og gaskútar tómir skv. ákvæðum leigusamnings skulu þessi atriði vera í lagi og félagsmenn hvattir til þess að sinna því. […]
,,Verðum að fá meira fyrir fiskinn“ Verkfallsboðun samþykkt.
Sjómannafélögin í landinu hafa samþykkt verkfallsboðun með yfirgnæfandi meiri hluta í atkvæðagreiðslu sem lauk þann 17 október. Um 905 þeirra vilja hefja verkfall þann 10. nóvember og verður þá að vera búið að draga öll veiðarfæri úr sjó fyrir klukkan 23. „Við fáum afgerandi niðurstöðu út úr þessari atkvæðagreiðslu. 92% þeirra sem kusu í okkar […]
Félagsfundur þann 28 september og 13. október
frettabref-steingrimur Félagsfundir verða haldnir á Sjómannastofunni Vör þann 28 september og einnig þann 13. október. Fundirnir hefjast kl : 20:00 , dagskrá fundanna verður að kynna kosningu um vinnustöðvun sem mun hefjast kl 23.00 þann 10.nóvember. Einnig verður kosið um fulltrúa sem fara á á Sjómannasambands þings dagana 24-25. nóvember. Stjórnin.
Boðað er til vinnustöðvunar á fiskiskipaflotanum kl: 23:00 þann 10. nóvember 2016.
Samninganefnd SSÍ skorar á aðildarfélög að hefja strax kosningu um boðun vinnustöðvunar. Atkvæðagreiðslu og talningu atkvæða skal lokið eigi síðar en kl:14:00 þann 17. október 2016. Kosning um boðun verkfalls mun fara fram hjá okkar félagi núna á næstu dögum , Stjórn SVG tók ákvörðun um rafræna kosningu og mun Advania sjá um það ferli […]
Lausar vikur í Orlofshúsum félagsins
September er nú opinn í Vesturbrúnum , framkvæmdum við pottahúsið sem fara áttu fram á næstu vikum var frestað fram yfir áramót. orlofsnefndin.
Samningurinn felldur með afgerandi meirihluta
Ný undirritaður kjarasamningur milli S.S.Í og S.F.S var kolfelldur þegar talið var uppúr kössunum í húsi ríkissáttasemjara í gær. Rúmlega helmingur félagsmanna okkar greiddi atkvæði af þeim sem voru á kjörskrá, og ljóst má vera að skilaboðin eru skýr. Ekki þarf að leggja pappíra af þessu tagi á borð sjómanna, stóru málin uppá borðið strax […]