Boðað er til vinnustöðvunar á fiskiskipaflotanum kl: 23:00 þann 10. nóvember 2016.

Samninganefnd SSÍ skorar á aðildarfélög að hefja strax kosningu um boðun vinnustöðvunar. Atkvæðagreiðslu og talningu atkvæða skal lokið eigi síðar en kl:14:00 þann 17. október 2016.

Kosning um boðun verkfalls mun fara fram hjá okkar félagi núna á næstu dögum , Stjórn SVG tók ákvörðun um rafræna kosningu og mun Advania sjá um það ferli .

Mánudaginn 19. september mun verða klár flipi  hér á síðunni , þar er félagmanni beint inná heimasíðu Advania , einnig er hægt að fara beint á þeirra síðu.

Þar finnur félagsmaður sitt félag slær inn sína kennitölu , ef hún er á kjörskránni þá skráir viðkomandi sig inn með Íslykli.

Ef viðkomandi hefur ekki íslykil þá hakar hann í box og fær lykilinn sendann um hæl í heimabankann sinn.

Þegar að innskráningu er lokið birtist kjörseðilinn á skjánnum , viðkomandi kýs og sendir kjörseðilinn til baka.

Stjórn SVG

 

 

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00