Aðalfundur Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur , SVG , 28 desember 2022.
Síðastliðin tvö ár féllu fundarhöld niður vegna Covit-19 , nú í ótíð og ófærð mættu til fundar 40 félagsmenn í Sjómannastofuna Vör í Grindavík.
Formaður SVG Einar Hannes Harðarson setti fundinn , fundarstjóri kjörinn Óskar Sævarsson.
Skýrsla stjórnar ; Einar Hannes formaður fór yfir starfsemi félagsins á liðnu ári.
Öryggismál voru í brennidepli , félagsmenn voru ámyntir um árvekni og varúð, aldrei má slaka á í þeim efnum. Samhugur SVG er með aðstandendum félagsmans SVG sem fell útbyrðis á línuskipinu Sighvati GK -57 í desember byrjun.
Fest voru kaup á nýju glæsilegu orlofshúsi í landi Miðengis í Grímsnesi.
SVG varði launarétt sinna félagsmanna með góðum árangri í fjölmörgum málum gagnvart útgerðinni og skifti þar tugum milljóna í málum sem voru til lykta leidd.
Ársreikningar; Kári M Ölversson Gjaldkeri SVG fór yfir reikninga félagsins , sem sína góða afkomu og voru þeir samþykktir einróma.
Undir liðnum önnur mál , var Einar formaður í forsvari um kjarmál sjómanna
m.a kom fram , að fjölmargir fundir hafa átt sér stað milli SVG og SFS frá 2019 þegar að samningur rann út.
Helstu punktar eru ; almennt er ekki hægt að segja að það þokist nær samningum.
Haldið hefur verið til streitu einföldum kröfum sjómanna , launaliðir hækki og
Hækkun á lífeyrisgreiðslum.
Nálgun SFS hefur verið að grundvöllur samninga muni byggjast á þáttöku sjómanna
m.a í auðlindagjaldi útgerðar.
Stefnt er að könnun meðal sjómanna um hug þeirra til m.a aðgerða í deilunni.
Útgerðin er með hugann til hægri og vinstri þess utan og vill hræra m.a í
Skiftaprósentunni.
Ályktun : Aðalfundur SVG haldinn 28/12 2022.
,,Félagsmenn S.V.G hvetja samninganefndir sjómanna í yfirstandandi kjaradeilu við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi , að hvika hvergi frá kröfu okkar um sömu réttindi til lífeyris og aðrir landsmenn njóta”