Aðalfundur félagsins fór fram að þessu sinni í húsi fagfélaganna að Stórhöfða 29 í Reykjavík.
Fámennt en góðmennt var að þessu sinni , í ljósi aðstæðna vel skiljanlegt um 30 manns sátu góðann fund og nutu góðra veitinga í boði félagsins.
Tvær ályktanir voru samþykktar:
,, Aðalfundur Sjómanna og vélastjórafélags Grindavíkur krefst þess að lífeyrissjóðurinn Gildi segi sig úr landssambandi lífeyrissjóða “
,, Aðalfundur Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur lýsir yfir mikill óánægju með að lífeyrissjóðurinn Gildi hafi ekki veitt grindvíkingum bjargbrú í þessum hamförum”
Venjuleg dagskrá aðalfundar fór fram með ágætum , Einar Hannes Harðarson formaður SVG flutti skýrslu stjórnar og fór yfir viðburðaríkt ár í starfi félagsins , Kári M Ölversson Gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins og voru þeir samþykktir einróma.
Í tali fundarmanna kom fram að nú skuli látið ,,sverfa til stáls” í umræðum og aðgerðum um kjaramálin.
Fundarstjóri var Óskar Sævarsson.