Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka viðmiðunarverð í viðskiptum milli skyldra aðila frá og með 1. desember 2009. Verð á slægðum og óslægðum þorski hækkar um 5%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu hækkar um 10% og verð á karfa hækkar um 5%.