Aflaverðmæti ýsu nam um 10 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 6 milljörðum, sem er 34,7% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 5,1% milli ára í 4,2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 31,9% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2008.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2009 sem er 74,5% aukning frá fyrra ári.
Verðmæti uppsjávarafla jókst um 11% milli ára og nam rúmum 15 milljörðum króna frá janúar til ágúst 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 7,2 milljörðum samanborið við 4,7 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 4,2 milljarðar samanborið við 3 milljarða 2008.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Hagstofu Íslands.