Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í gær, 2. febrúar, var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 10%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 5%. Verð á karfa var ákveðið óbreytt. Verð þetta gildir frá og með 1. febrúar 2009.