Iðgjöld til lífeyrissjóðanna

2.      Iðgjöld til viðbótarlífeyrissparnaðar.
Samkvæmt upplýsingum lífeyrissjóðanna, er öllum innborgunum sem berast til lífeyrissjóða vegna  viðbótarlífeyrissparnaðarins eftir að fjármálamarkaðir lokuðu í byrjun október ráðstafað með öruggum hætti og þannig að ávöxtun þeirra er tryggð m.a. þannig að þau njóti verndar skv. lögum nr. 98/1999 um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sbr. og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6.10 2008.  Þessi nýju iðgjöld munu því ekki sæta lækkun af völdum yfirstandandi efnahagsþrenginga. Það launafólk sem gert hefur samninga um viðbótarlífeyrissparnað þarf því ekki að óttast um afdregin ný iðgjöld.
3.      Lögbundin iðgjöld til lífeyrissjóða
Öllum nýjum lögbundnum 12% iðgjöldum til samtryggingar er ráðstafað í samræmi við ákvæði laga 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða en þar segir að ávaxta skuli fé sjóðanna með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Þessi iðgjöld skapa ekki réttindi með sama hætti og iðgjöld til viðbótarlífeyrissparnaðar, sem er séreign einstaklingsins. Í samtryggingunni eru allir fyrir einn og einn fyrir alla. Lífeyrissjóðir landsmanna munu því taka á sig og dreifa á milli sjóðfélaga sinna,  því áfalli sem kann að verða vegna efnahagsþrenginganna en innborguð ný iðgjöld munu stuðla að því að styrkja lífeyrissréttindi allra sjóðfélaga til lengri tíma.  Tryggingafræðileg staða sjóðanna verður reiknuð út í byrjun næsta árs með hliðsjón af stöðu sjóðanna um áramót.
4.      Réttarstaða iðgjalda við gjaldþrot atvinnurekanda
Kröfur lífeyrissjóða um ógreidd iðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir gjaldþrotið falla í hóp forgangskrafna en þær ganga í grundvallaratriðum næst á eftir kostnaði við skiptin og veðkröfum (112.gr. l. 21/1991).  Oftast nær fæst lítið upp í forgangskörfur.  Þá reynir á ábyrgð Ábyrgðarsjóðs. Sjóðurinn ábyrgist kröfu lífeyrissjóðs um lífeyrisiðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir gjaldþrot.  Ábyrgðin takmarkast við 12% lágmarksiðgjald og allt að 4% af iðgjaldsstofni samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd ( 5.gr. l. 88/2003 ). Til þess að ábyrgðin sé þetta mikil þarf hins vegar að uppfylla nokkur skilyrði. Þau eru í meginatriðum eftirfarandi (Rgj. 462/2003):

  • Lífeyrissjóður þarf að sýna fram á að  hann hafi uppfyllt skyldur sínar um upplýsingagjöf gagnvart sjóðfélaga og innheimtuaðgerðir vegna vanskila í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997 en þar segir að lífeyrissjóðir skuli senda sjóðfélögum sínum yfirlit um iðgjaldagreiðslur eigi sjaldnar en á hálfs árs fresti. Yfirliti þessu skal fylgja áskorun til sjóðfélaga um að gera án tafar athugasemdir ef sannanlega innheimt iðgjöld hafa ekki borist sjóðnum.
  • Ábyrgð Ábyrgðasjóðs er einnig háð því skilyrði að eðlilega hafi verið staðið að innheimtutilraunum af hálfu lífeyrissjóðs eða vörsluaðila en við það er miðað að innheimtuaðgerðir vegna vangoldinna iðgjalda samkvæmt innsendum skilagreinum hefjist innan þriggja mánaða frá eindaga kröfu og að innheimtuaðili geti sýnt fram á að málinu hafi verið fram haldið á eðlilegum hraða eftir þann tíma.

Samkvæmt framansögðu er lögð talsverð ábyrgð á launafólk að bregðast við þegar yfirlit lífeyrissjóðanna berast og tilkynna lífeyrissjóði sínum án tafar ef vanhöld eru á greiðslu iðgjalda. Ef það er ekki gert geta mikilvæg réttindi glatast.
5.      Staða lífeyrissjóðanna og skerðing réttinda
Viðbótarlífeyrissparnaður
Hvað varðar uppsafnaðan viðbótarlífeyrissparnað, þá gaf forsætisráðherra þá yfirlýsingu þann 6.10 2008, að hann yrði varinn. Efni þessarar yfirlýsingar var ekki lögfest og því erfitt að átta sig á því við hvað nákvæmlega var átt, því séreignasparnaður landsmanna er af ýmsum toga og ávaxtaður með ýmsum hætti, t.d. í erlendum og innlendum hlutabréfum og, skuldabréfasjóðum.  Í síðari yfirlýsingum hefur verið dregið úr þessari afdráttarlausu yfirlýsingu og nú ljóst að séreignasparnaður landamanna er ekki tryggður nema skv. ákvæðum neyðarlaganna nr. 125/2008. Í þeim er að finna sérstakt ákvæði um innistæður ýmissa séreignasjóða og lífeyrissjóða hjá banka eða sparisjóði. Samkvæmt neyðarlögunum eru þær tryggðar í Tryggingasjóði skv. lögum nr. 98/1999 um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, þrátt fyrir að vörsluaðili eða rekstrarfélag slíkra sjóða sé viðkomandi banki eða sparisjóður.  Þetta bætir stöðu séreignasparnaðarins nokkuð en líklegt er að hann muni skerðast eitthvað. Það er þó mismunandi eftir einstökum sjóðum.
Sumt af viðbótarlífeyrissparnaði landsmanna er tryggt á sérstökum innlánsreikningum (lífeyrisbókum) og ljóst að sá sparnaður mun varinn að fullu af Tryggingasjóði og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6.10 2008 eins og aðrar inneignir í bankakerfinu. Loks mun viðbótarlífeyrissparnaður varðveittur og ávaxtaður með sama hætti og eignasafn viðkomandi samtryggingarlífeyrissjóðs og mun sá sparnaður því fylgja ávöxtun hans  og er ekki tryggður í Tryggingasjóði.  Hins vegar munu ný iðgjöld ekki sæta skerðingu sbr. hér að ofan.
Hér á eftir er gerð grein fyrir stöðu viðbótarlífeyrissparnaðar hjá stærstu lífeyrissjóðunum á almennum vinnumarkaði. Byggt er á upplýsingum sjóðanna sjálfra en nánari og uppfærðra upplýsinga er að leita á vefsíðum þeirra ( allir aðildarsjóðir Landssamtaka lífeyrissjóða ).   Neðangreindar upplýsingar eru miðaðar við 12.11 2008.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
Lífeyrissjóðurinn hefur í samráði við endurskoðendur sjóðsins endurmetið eignir séreignardeildar og er niðurstaða þess mats sú að lækka þarf gengi séreignardeildar um 14,4% vegna áfalla fjármálakreppunnar í október. Þannig nemur lækkun séreignardeildar frá áramótum 23,4% vegna óhagstæðrar þróunar á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Um síðustu áramót nam 5 ára árleg meðalávöxtun séreignardeildar 15,8%. Frekari lækkanir á inneignum sjóðfélaganna eru ólíklegar og ekki útilokað að einhver hluti lækkunarinnar geti gengið til baka.
Gildi lífeyrissjóður
Reiknað hefur verið nýtt gengi á eignir Framtíðarsýnar I og II og það leiðrétt vegna falls bankanna og einnig hafa tiltekin skuldabréf verið færð niður.  Nemur lækkunin á eignum Framtíðarsýnar I og II vegna þessa um 12%.  Engin breyting er á gengi Framtíðarsýnar III sem er verðtryggður innlánsreikningur.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Niðurstaða liggur ekki fyrir. (12.11 2008)
Stapi lífeyrissjóðurinn
Ekkert bendir til annars en að eignir safnanna muni koma ágætlega út úr þeim hamförum sem nú ganga yfir þrátt fyrir skammtímasveiflur. Skerðing er því ekki fyrirhuguð.
Festa lífeyrissjóður
Niðurstaða liggur ekki fyrir. (12.11 2008)
Stafir lífeyrissjóður
Niðurstaða liggur ekki fyrir. (12.11 2008)

Samtryggingarsjóðir  á almennum vinnumarkaði.
Þrátt fyrir að einhver skerðing lífeyrisréttinda virðist nú vera óumflýjanleg ber að hafa í huga að staða lífeyrissjóðanna er mjög sterk og ávöxtun þeirra undanfarin ár hefur verið mikil og miðað við svartsýnustu spár verður staða þeirra eftir skerðingu ekki lakari en hún var um mitt ár 2005.
Í lok ágúst 2008 var staða þeirra þannig að um 9% af heildareignum lífeyrissjóðanna var í innlendum hlutabréfum, um 10% í fyrirtækjabréfum, um 8% í skuldabréfum banka og um 9% í verðbréfasjóðum. Þetta eru um 36% af heildareignum sjóðanna og ekki er að fullu ljóst hve mikið þessar eignir mun rýrna. Aðrar eignir sjóðanna munu vel tryggðar. Að teknu tilliti til þess að fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru ekki allar eins samsettar og að ekki eru komnar fram allar ráðstafanir stjórnvalda, gæti komið til þess að eignarýrnun yrði á bilinu 10-25%.
Það þýðir hins vegar ekki að lífeyrir muni lækka um þetta sama hlutfall og raunar er ljóst að hann mun lækka talsvert og mun minna. Hver lækkunin endanlega verður ræðst m.a. af aldurssamsetningu sjóðfélaga og hve mikið af ávöxtun undanfarinna ára hefur verið tekin inn í hækkun lífeyrisréttinda.  Sú lækkun kemur þó aldrei til framkvæmda fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs. Hafa ber einnig í huga  að lækkun lífeyris frá lífeyrissjóðum getur í mörgum tilvikum hækkað bætur almannatrygginga.
Hér á eftir er gerð grein fyrir stöðu lífeyrisréttinda í stærstu samtryggingarsjóðunum á almennum vinnumarkaði. Byggt er á upplýsingum sjóðanna sjálfra.%2

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00