Stofnmæling rækju á grunnslóð vestan- og norðanlands árið 2008

Nýlokið er haustkönnun Hafrannsóknastofnunarinnar á rækjumiðunum á Vestfjörðum og á fjörðum og flóum norðanlands.

Helstu niðurstöður: Rækjustofninn í Arnarfirði virðist hafa náð sér verulega á strik og er lagt til að rækjuveiðar verði stundaðar þar nú í vetur og veidd verði 500 tonn. Á öðrum svæðum er of lítið rækjumagn og mikið af ungfiski einkum ýsu. Þorskur eins árs og eldri var undir meðaltali síðustu 10 ára á öllum svæðum. Hins vegar var mikið af ýsu eins árs og eldri á öllum svæðum. Einnig varð talsvert vart við lýsu.

Aðrar niðurstöður: Í stofnmælingu rækju á grunnslóð eru jafnframt stundaðar almennar fiskirannsóknir svo sem fæðurannsóknir á þorski, ýsu og lýsu, mælingar á öllum fiski og sýni tekin til aldursákvörðunar ásamt skráningu fjölda þorsk- og ýsuseiða. Rækja var eins og áður áberandi fæða þorsks, lýsu og ýsu þar sem tegundirnar halda til á sama svæði oft innarlega í fjörðum. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum um fjölda þorskseiða virðist 2008 árgangur þorsks slakur og svipaður og árið 2007. Fyrstu merki um 2008 árgang ýsu benda hins vegar til að sá árgangur sé yfir meðaltali á grunnslóð, þó aðeins minni en 2007 árgangurinn var árið 2007.

Arnarfjörður
Rækja var útbreiddari en undanfarin ár í Arnarfirði. Heildarvísitala var há og mun hærri en á sama tíma árið 2007. Rækjan var stór og virðist óvanalega mikið af rækju 6 ára og eldri. Nýliðun virtist einnig góð. Þorskur var undir meðaltali áranna 2000-2008 en þó var dálítið um þorsk í næsta nágrenni við rækjuna. Mikið var af ýsu eins árs og eldri í firðinum einkum utan rækjusvæðanna. Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að rækjuveiðar verði leyfðar veturinn 2008-2009 með 500 tonna leyfilegum hámarksafla.

Ísafjarðardjúp
Rækjustofninn í Ísafjarðardjúpi mældist lítill og hefur minnkað mikið frá árinu 2007 þegar stofninn virtist vera á uppleið. Minna var um þorsk en áður en þeim mun meira af ýsu og lýsu. Undanfarna fimm vetur hefur verið mikið af þorski og ýsu í Djúpinu en oftast lítið af rækju og hafa engar rækjuveiðar verið leyfðar.

Húnaflói
Aðeins fannst rækjuvottur í Húnaflóa. Þar hafa engar rækjuveiðar verið stundaðar í 9 vetur. Þorski hefur fækkað töluvert frá haustinu 2005, en mikið var af ýsu um allan innanverðan flóann.

Skagafjörður
Lítið fannst af rækju og er það svipað ástand og frá því haustið 2000 er rækjustofninn hrundi. Fjöldi þorsks eins árs og eldri var lítill, en fjöldi ýsu eins árs og eldri var yfir meðaltali áranna 2000-2008. Þetta ástand er því svipað og í Húnaflóa og slakt útlit fyrir rækjustofninn á næstunni.

Skjálfandi
Rækjustofninn virðist á hægri uppleið og stærð rækju var yfir meðallagi. Fjöldi þorsks var langt undir meðallagi, og fjöldi ýsu eins árs og eldri var undir meðaltali áranna 2000-2008. Þannig gæti rækjustofninn vaxið eitthvað á þessu svæði á næstunni. Engar rækjuveiðar hafa verið stundaðar þarna síðustu 8 vetur.

Öxarfjörður
Lítið fékkst af rækju nú en þó aðeins meira en haustið 2007. Þetta er þó svipað og verið hefur flest árin frá því árið 2000. Stærð rækju var nálægt meðallagi og nýliðun var góð. Fjöldi þorsks var undir meðaltali en eins og annars staðar á grunnslóð var mikið af eins árs og eldri ýsu. Engar rækjuveiðar hafa verið stundaðar þarna síðustu 6 vetur.

Að þessu sinni fór haustkönnun fram á Dröfn RE 35. Verkefnistjóri er Unnur Skúladóttir, en leiðangursstjórar voru Guðmundur Skúli Bragason og Stefán Brynjólfsson. Skipstjóri var Gunnar Jóhannsson.

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00