Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Landssamband smábátaeigenda (LS) hefst fimmtudaginn 19. nóvember klukkan 12:00 og stendur til mánudagsins 30. nóvember klukkan 16:00.
Atkvæðagreiðslan verður sameiginleg (VM og SVG) og verður hlekkur á hana birtur í þessari frétt þegar hún opnar.
Athugið að aðeins þeir sem vinna eftir þessum kjarasamningi geta greitt um hann atkvæði.
