Við hátíðlega athöfn í Grindavíkurkirkju fór fram heiðrun á vegum Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur.
Vilhjálmur Árnason þingmaður flutti æviágrip og formaður SVG Einar Hannes Harðarson veitti heiðurs orðu og blómvendi .
Nú voru það heiðurshjónin Þorbjörg Halldórsdóttir og Önundur G Haraldsson ásamt þeim Þórhalli Stéfanssyni og Guðmundi Snorra Guðmundssyni , öll eiga þau sameiginlegt að hafa og verið öflugir og virkir félagsmenn í S.V.G
Önundur , Þórhallur og Guðmundur Snorri eiga að baki langan og gæfusaman sjómannsferil , voru allir á sjó í fimm áratugi og hálfum betur .
Þorbjörg var fyrsti starfsmaður S.V.G og vann á skrifstofunni í rúman áratug , hafði einnig aðkomu að Sjómannadagsblaði Grindavíkur um 25 ára skeið.
Texti mynd: f.v. Einar Hannes Harðarsson formaður SVG , Guðmundur Snorri Guðmundsson , Þórhallur Stéfansson , Önundur G Haraldsson og Þorbjörg Halldórsdóttir
