Fiskiskip – Leiðbeiningar um smitgát og viðbrögð ef grunur er um smit um borð
Einstaklingur í sóttkví má ekki koma um borð
Einstaklingur sem sýnir flensueinkenni er ekki heimilt að koma um borð.
Einstaklingi sem hefur umgengist einstaklinga sem eru með Covid-19 er ekki heimilt að koma um borð enda í sóttkví að skipan Landlæknis.
Mælst er til að áhafnir séu skimaðar. Landlæknir heimilar skimun einkennalausra skipverja sem eru lengur úti en 5 daga og sigling til hafnar þar sem heilbrigðisþjónusta er tekur lengur en 8 klst. Útgerð getur haft samband við heilsugæslu um skimun áhafnar. Að lokinni skimun og neikvæðri niðurstöðu skal skipverji haga sér sem hann væri í sóttkví þar til farið er um borð.
Áður en haldið er úr höfn
Gæta skal að lyfjakistu um borð og hafa samband við trúnaðarlækni eða heilsugæslu um æskilegar lyfjabirgðir.
Hafa hlífðarfatnað (veiruheldar grímur, hanska, plastsvuntur) til að bregðast við smiti um borð, hreinsiefni og sótthreinsiefni (Virkon eða klórblöndu 500-1000 ppm að styrkleika). Hafa einnota mataráhöld (diska, mál og hnífapör) um borð.
Mælst er til að vistir (varahlutir, matvæli ofl) séu skilin eftir við borðstokk og áhöfn komi varningi um borð.
Áður en haldið er úr höfn skal skipstjóri/útgerð ræða við áhöfnina um hvers ber að gæta við að verjast smiti (handþvottur, notkun handspritts, aukin þrif og sótthreinsun snertifleta, matsveinn skammti á diska o.s.frv.)
- útgáfa, 29.10.2020
2
Áhöfnin skal við upphaf veiðiferðar upplýst um viðbragðsáætlun útgerðar ef smit kemur upp um borð. Fyrstu tvær vikur veiðiferðar skipta höfuðmáli.
Umgengni um borð fyrstu tvær vikurnar á sjó
Skipverjar haldi sig eins mikið og mögulegt er út af fyrir sig og virði tveggja metra fjarlægð milli manna ef hægt er, t.d. í borðsal og í stakkageymslum.
Tilmæli verði gefin um að sem fæstir verði í borðsal og öðrum sölum á hverjum tíma. Skipverjum verði skipt í hópa á matartímum og áhöld, stólar, borð o.þ.h. sótthreinsað eftir að hver hópur hefur lokið máltíð. Matsveinn skammti á diska og afhendi hnífapör/leggi á borð.
Skipstjórar og yfirstýrimenn fari sem minnst eða ekki í borðsal og önnur rými skipsins þar sem umferð áhafnar er mikil. Þeim verði færður matur og annar viðurgerningur.
Vélstjóri á vakt verði í vélarrúmi eins og við verður komið. Ef ekki á vakt þá sem mest í klefa sínum. Vélstjórar neyti matar einir ef hægt er.
Munum reglulegan handþvott og sprittun. Spritta alla snertifleti eins og mögulegt er. T.d. eftir kaffipásu í stakkageymslu þar sem skipverjar virða fjarlægðarreglur.
Finni skipverji fyrir flensueinkennum meðan hann er í klefa skal hann tilkynna það símleiðis upp í brú og halda kyrru fyrir í klefa.
Komið til hafnar
Ef skipverji á að fara næsta túr er mælst til að hann sé um borð nema brýna nauðsyn beri til.
Fari skipverji í land milli túra þá skal viðkomandi vera sem minnst á ferli nema brýna nauðsyn beri til.
Löndunargengi fari ekki í önnur rými skips nema þau sem nauðsynleg eru vegna vinnu eða öryggis, til að mynda stakkageymslur, borðsali eða vistarverur skipverja.
Eins eiga þessi tilmæli við um viðgerðarmenn og aðra sem þjónusta skip í höfn. Þeir séu aðeins á þeim svæðum þar sem vinna er nauðsynleg.
Svæði þar sem löndunargengi eða aðrir úr landi sem þjónusta skipið, fara um við vinnu sína verði þrifin og sótthreinsuð að vinnu lokinni áður en skipverjar fara um svæðið.
Þegar skip er í höfn skal vera handspritt við landgang og öllum er skylt að spritta hendur sínar áður er gengið er um borð í skipið. - útgáfa, 29.10.2020
3
Grunur um smit
Hafið strax samband við Stjórnstöð LHG/112. Látið útgerð/útgerðarstjórn skipsins einnig vita strax. Skipstjóri ráðfærir sig við LHG/112 og útgerðarstjórn skipsins. LHG vinnur samkvæmt Leiðbeiningum hafna og skipa og leiðbeinir um sóttvarnahöfn sem skipi er vísað til í samráði við sóttvarnalækni. LHG tryggir upplýsingamiðlun til hlutaðeigandi hafnar.
Skipstjóri ber ábyrgð á öllum aðgerðum og ákvarðanatökum.
Skipstjóri skal setja viðkomandi strax í tímabundna einangrun. Ekki er heimilt að flytja hann á milli klefa, hann skal vera áfram í sínum klefa með aðgengi að snyrtingu og sturtu sem öðrum er ekki heimilt að nota á meðan.
Skipstjóri skal tilgreina einn úr áhöfn sem hefur leyfi til að umgangast þann sem er í sóttkví og færa honum mat og aðrar nauðsynjar. Sami aðili skal sjá um hann allan tímann á meðan hann er í sóttkví. Sá aðili skal klæðast viðeigandi hlífðarbúnaði (einnota hanskar, grímur, plastsvuntur). Öðrum er óheimilt að umgangast hann.
Allan búnað sem viðkomandi einstaklingur þarf á að halda í einangrun skal ekki blanda saman við annan búnað áhafnar. Helst skal nota einnota matarstell og setja að notkun lokinni í lokaðan poka inn í klefa. Matarstell, búnaður og föt skulu þvegin sér og skal sá sem tekur við því klæðast hlífðarbúnaði (einnota hönskum, grímu og plastsvuntu) sem má fara í lokaðan poka að notkun lokinni og í almennt sorp. Fatnað og áhöld má þvo með heitu vatni og sápu að notkun lokinni.
Áður en komið er til hafnar þegar grunur er um smit
Undirbúið skipið og þann sem er í sóttkví áður en komið er til hafnar samkvæmt ráðleggingum frá LHG/112 og sóttvarnalækni.
Mikilvægt er að aðrir úr áhöfn fari ekki frá borði heldur bíði frekari fyrirmæla.
Eftir að sjúklingur er farinn frá borði – Þrif og löndun
Sé um smit að ræða og sótthreinsa þarf skipið er mælt með því að fá fagaðila til verksins.
Þegar fagaðili hefur lokið þrifum er mælt með að endurtaka þrifin, þó ekki fyrr en 3 klst eftir að fyrri þrifum er lokið.
Beita skal grundvallarsmitgát við þrif.
Mikilvægt er að þrífa svæði og loftræsta vel þar sem sá sem var í sóttkví hefur dvalið. Við þrifin skal nota eftirfarandi hlífðarbúnað: Einnota hanskar (tvenn pör), einnota svunta og grímu. Nota skal samþykkt hreinsi- og sóttvarnaefni (1% Virkon). Hafið tiltækan poka fyrir sorp. - útgáfa, 29.10.2020
4
Klefa, snyrtingu og sameiginleg rými skal þvo með sápu og heitu vatni. Alla snertifleti skal spritta. Á milli svæða skal skipta um þvottaklúta (bréfþurrkur) og setja slíkt í lokaðan poka og í almennt sorp. Allt lín sem sá sem dvaldi hefur notað eða er inni í káetu (rúmföt, handklæði, gardínur) skal þvo á 90°. Bréfaþurrkur eru notaðar til þess að hreinsa upp sýnileg spilliefni. Rúmdýnur skal sótthreinsa (strjúka yfir með sótthreinsi) og allt leirtau skal þvo.
Skiptið um hanska ef á þeim sést mengað efni. Að verki loknu skal setja notaðan hlífðarbúnað í plastpoka sem er lokaður tryggilega og má fara í almennt sorp. Hendur eru þvegnar og sprittaðar strax og búið er að ganga frá hönskum í lokaðan poka sem má fara í almennt sorp. Farið í hreinan vinnufatnað að verki loknu. Óhreinan fatnað má þvo í þvottavél.
Notuðum hlífðarbúnaði og öðru sorpi sem fallið hefur til við umönnum hins veika (t.d. notaðir ælupokar, óhreinar þurrkur) er sett í lokaðan poka sem fer í almennt sorp.
Vakni einhverjar spurningar hafið samráð við sóttvarnalækni/umdæmislækni sóttvarna á þeim stað sem komið er til hafnar um hvernig staðið skal að þrifum.
Vinnsluskip – vinnslurými skal þvo með sápu og heitu vatni. Snertifleti skal spritta.
Löndun afla/afurða úr skipum – Áður en löndun hefst skal loftræsta vel (lúgur opnar í 4 klst.). Fara skal stystu leið að afurðum. Starfsmenn sem sinna löndun skulu vera með hanska og grímur. Ef ekki er notaður hlífðarfatnaður skal skipta um fatnað að lokinni löndun og spritta hendur.
EINUNGIS ER UM LEIÐBEININGAR AÐ RÆÐA OG ÞVÍ ER MIKILVÆGT FYRIR SKIPSTJÓRA OG ÚTGERÐ AÐ FYLGJA FYRIRMÆLUM SÓTTVARNALÆKNIS OG LHG.
Sjá meðfylgjandi hlekki fyrir frekari upplýsingar:
Smellið hér fyrir frekari upplýsingar um atvinnulífið og vinnustað COVID-19.
Smellið hér fyrir frekari upplýsingar um leiðbeiningar um hafnir og skip vegna COVID-19.