Sjómenn.
Aðalfundur Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur 2017 verður haldinn miðvikudaginn 27. desember kl. 18.00 á Sjómannastofunni Vör .
Kvöldverður og léttar veitingar verða í boði félagsins að fundi loknum.
Að gefnu tilefni er öll áfengisneysla bönnuð á meðan á fundi stendur.
Dagskrá fundar.
.
- Fundur settur
- kosning fundarstjóra.
- Skýrsla Stjórnar
- Ársreikningar.
- Umræður um úrsögn úr SSÍ og ASÍ
- Önnur mál , kjaramál, orlofsmál .o.f.l
Jólaball
Sjómanna og Vélstjórafélag Grindavíkur ásamt Verkalýðsfélagi Grindavíkur og Grindavíkurbæ verður með hið árlega jólaball í Gjánni nýrri aðstöðu íþróttamannvirkja við Austurveg miðvikudaginn 27. desember milli kl 15:00 – 17:00
Hin eina sanna jólarödd , Helga Möller heldur uppi fjörinu með söng og leikjum Jólasveinar koma og syngja og dansa í kringum jólatréð með krökkunum.
Allir krakkar fá nammi og gos frá jólasveininum.
Heitt á könnunni og Skúffukökur í umsjón Kvenfélags Grindavíkur.
fréttabréf des.2017fréttabréf des 2017
