200 ár á sjó.

Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur.

 

200 ár á sjó !

Á Sjómanndaginn þann 3.júní sl voru heiðraðir fimm sjómenn frá Grindavík.

Hátíðleg athöfn  fór fram í Grindavíkurkirkju í sjómannamessu dagsins.

Prestur grindvíkinga sr Elínborg Gísladóttir þjónaði fyrir altari og Kór Grindavíkurkirkju leiddi söng undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista, þeim  til halds og traust voru þau Leifur Guðjónsson sjómaður sem flutti ræðu sjómannsinns og sjómannshjónin Kristmundur Óli Jónsson og Ásdís Ester Kristinsdóttir fluttu ritningarlestra. Sonur þeirra Tómas Darri Kristmundsson bar krans til minningar um drukknaða sjómenn og týnda.

Lúðrasveit verkalýðsins tók þátt í athöfninni og flutti m.a Suðurnesjamenn og Brennið þið vitar  og leiddi svo fjölmenna skrúðgöngu að minnisvarðanum Von.

Meðal gesta í Grindavíkurkirkju var forsætisráðherra Íslands Katrín Jakobsdóttir en hún flutti ræðu Sjómannadags á hátíðarsvæði eftir messu.

Forseti Íslands hr.Guðni TH Jóhannesson tók þátt í skrúðgöngu að minnisvarðanum Von og sameinaðist gestum á hátíðarsvæði.

Guðni og Katrín tóku einnig þátt í hátíðarhöldum sjómannafélagsins í Víðihlíð dvalarheimili aldraðra í Grindavík.

Myndatexti: frá vinstri ; Einar Hannes Harðarson formaður SVG ,  Stefán Egilsson og dóttir hans Kristín Egilsdóttir , Elínborg Ása Ingvarsdóttir og  Guðjón Einarsson , Gunnar Sigurðsson og Stefanía Bragadóttir ,Guðmundur Sigurðsson og Kristólína Þorláksdóttir og Jón A Ásgeirsson.

.

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00