Fjölmennasti fundur í sögu félagsins

Nú fyrir stundu lauk fjölmennasta fundi í sögu Sjómanna og Vélstjórafélags Grindavíkur.

Húsfyllir var í Sjómannastofunni Vör þar sem farið var yfir stöðuna í kjaradeilu okkar við Útgerðarmenn, Einar Hannes formaður félagsins rakti gang viðræðna og ástæðu þess að nú er gert hlé á viðræðum til n.k mánudags

Mikil samstaða kom fram meðal félagsmanna og fékk samninganefnd SVG fullkomið og óskorað umboð allra  viðstaddra til þess að hvika hvergi í kröfugerð , ekkert skal gefa eftir í þessum 5 meginkröfum sem á borðinu liggja.

Skliboðum var komið á framfæri til félagsmanna að fjölmenna á samstöðu-hitting við Karphúsið á mánudaginn n.k til þess að fylgja eftir þeim einhug er ríkti á fundinum.

 

stjórnin.

 

Sími 426 8400 | Fax 426 8405 | svg@svg.is | Vefur frá TACTICA


Opnunartími skrifstofu er mánudaga til föstudaga frá 08:00-13:00